Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur.
Eldri kennarar frá Skóla Ísakssonar hafa hist í gegnum tíðina á kaffihúsi í Perlunni og bera því nafnið Perlur. Þetta eru samkennarar til margra ára og eiga margt sameiginlegt eins og fallegar og góðar minningar frá skólanum. Síðast áttum við fund í Flóru,kaffihúsinu í Grasagarðinum.
Á þessa kaffifundi mæta þær sem geta hverju sinni og oft er glatt á Hjalla. Hér eru að spjalli tvær góðar þær Herdís Egilsdóttir og Svava Sigurjónsdóttir. Svava heldur í borðplötuna og útskýrir fyrir okkur hinum hvernig hún reyni á stundum að halda í tímann sem rennur svo hratt úr greipum. Henni finnst þá stundum gott að sitja sem fastast, gera ekki neitt og njóta stundarinnar sem lengst. Hver kannast ekki við þessa tilfinningu............?
Hver skreytir malbikið betur en fífill við stein?
Var að ljúka við að ganga frá barnasokkum og teppi og gat ekki stillt mig um að setja sokkana á leirdisk þar sem litirnir fara vel saman. Góð skemmtun þetta!
Afmæli 12. júní 2017
Enn og aftur fékk ég að halda upp á afmælið mitt. Þetta gerði ég 11. júní að þessu sinn enda sunnudaguri. 11. júní er merkilegur um margt og má þar nefna afmæli móðurömmu minnar, Guðrúnar, tengdamóður sonar míns, Ingibjargar og svo er hann að auki brúðkaupsdagur Guðlaugar Maríu og Gunnars Þórs sem giftu sig fyrir réttum 12 árum. Þessi dagur var bjartur og fagur. Hann endaði á besta veg með sigri Íslenska knattspyrnulandslisins gegn Króatíum á Laugardalsvelli 1:0 fyrir ÍSLAND!!! og allri fóru glaðir (og saddir) heim.
Í handraðanum hér fyrir ofan til hægri má finna uppskriftina af súpunni undir link sem ber nafnið Matur er mannsins megin, verði ykkur að góðu!
Í dag fékk ég boð um að mæta í útgáfuteiti, sem ég og gerði og hafði mjög gaman af. Þar hitti ég margar eldri samstarfskonur úr Selásskóla. Ég veit að sumar allavega hittast eitthvað en hef sjálf ekki verið með þeim lengi.