Maí

posted in: Á döfinni | 0

Þessi fífill var sá fyrsti sem ég fann í ár.
Enn og aftur fæ ég að njóta þess að fara út í vorið og fagna þar vinum mínum. Vona að sumarið verði okkur öllum gjöfult og gott.

Kátur er góður félagi og saman könnum við næsta nágrenni.

Hann þefar og merkir sér staði á meðan ég reyni að festa áhugaverð fyrirbæri á filmu.

Við Skólaveg vaxa myndarleg tré og runnar. Hér brumar ölur trúi ég. 

2. maí fórum við á tónleika í Háteigskirkju. Þar söng Valskórinn og með honum Sigrún Hjálmtýsdóttir. Góð skemmtun. Fallegur söngur undir frábærri stjórn og með góðum undirleik. 

Við Lilja Margrét heimsóttum Safn Einars jónssonar og að þessu sinni skoðuðum við myndirnar í garðinum. 

Allt um kring voru erlendir ferðamenn að taka myndir og við gerðum slíkt hið sama!

Leave a Reply