Mars 2016

posted in: Á döfinni | 0

Nú er komið að því! Búin að fá póst um að nú sé tíminn að renna út. Ég verð að borga fyrir hýsinguna á síðunni minni sem er að renna út eftir 44 daga!
Mér hefur fundist gaman að spreyta mig en ekki verið nógu dugleg. Ég get alveg hugsað mér að halda áfram en það kostar. Þetta er auðvitað aðeins spurning um mitt val. Þeir eru greinilega ekki margir sem lesa hugrenningar mínar hér enda vita fáir af síðunni. Mér finnst gaman að skrifa. Kosturinn við að skrifa á svona síðu er að þú verður að vanda þig talsvert og möguleikarnir eru margir. Hér hef ég mest verið að skrifa í póstinn en gæti gert svo margt annað. Ef hægt er að greiða fyrir styttri tíma en ár í senn getur verið að ég haldi áfram.
Mars var langur en góður með fallegum páskum, góðum gestum,rólegheitum og handavinnu. Ég horfi vongóð til sumarsins og þakka fyrir að fá að lifa enn eitt vor með fuglakomum og nýgræðingi, góðum vinum og fjölskyldu.
Það eru mikil forréttindi að fá að búa á Íslandi. Ef þú efast þá lestu fréttir af sveltandi börnum og flóttafólki um víða veröld.
Við eigum sem manneskjur að geta fundið leið til að bæta þennan heim og gera hann umhverfisvænan fyrir okkur öll.

Leave a Reply