Nýtt ár 2016

posted in: Á döfinni | 0

IMG_0080

Gleðilegt ár og þakkir til þeirra sem hér hafa komið! Síðan mín er ekki mjög virk en vonandi tekst mér að baksa hér áfram um hríð. Mér fer varla fram ef ég mæti illa.

Á gmalárskvöld vorum við með barnabörnum og fjölskyldum þeirra. Við fengum dýrindis kræsingar sem voru borna fram á fagurlega skreytt borð.

Kvöldið var hefðbundið og allt gekk vel. Þegar við komum heim blastið við okkur slóð eftir einn mann sem hafði gengið frá húsinu okkar. Hér heima var kyrrð og ró og gott að halla höfði á mjallhvítan, dúnmjúkan koddann sem minnti á nýfallna mjöllina fyrir uta.

Guð gefi að viti á gott þegar árið byrjar svona vel.

Leave a Reply