Pétur Pan

posted in: Á döfinni | 0
 

Fór með ungum sveinum og sá myndina Pan frá sumri 2015 .

Excellent Family Movie.
Author: CarlosEspagna from Spain
30 September 2015 -
lausl. þýtt - anm

"Pan er Bresk-Amerisk fantasiumynd sem var frumsýnd í London 20. september 2015. Henni er stjórnað af Joe Wright og er skrifuð af Jason Fuchs. Myndin á að vera forsaga "prequel" að skosku sögunni um Pétur Pan eftir J. M. Barrie's.
Söguþráður myndarinnar er á þá leið að munaðarleysingi að nafni Pétur Pan (Levi Miler) hverfur fyrir töfra til Hvergilands. Þar fer hann á vit ævintýra og kemst í kast við Kaptein krók (Garrett Hedluns) og hjálpar til við að berjast við hinn illræmda sjóræningja Svartskegg (Hugh Jackman).

Myndin hefur fengið misjafnar móttökur og sumir kveða svo fast að orði að leikstjórinn muni missa af stóru verkefni sem honum var ætlað.

Hvað sem um þetta má segja þá skemmtum við okkur vel og vinir mínir voru mjög sáttir við þessa söguskýringu á tilurð Péturs Pan og fyrstu komu hans til Hvergilands.

Læt fylgja hér með glefsur af vefnum um upprunalegu söguna og tilurð hennar.

Var Pétur Pan til eða er þetta bara saga?
Í London er stytta af Pétri Pan sem var afhjúpuð í Kensington-garðinum í London árið 1912.
Margir þekkja söguna af töfradrengnum síunga Pétri Pan og er hún löngu orðin sígild bæði meðal barna og fullorðinna. Sögupersónan Pétur Pan birtist fyrst í bókinni The Little White Bird (1902) eftir skoska rithöfundinn James Matthew Barrie (1860-1937). Seinna var sá hluti sögunnar sem Pétur Pan kemur fram gerður að leikriti sem sett var upp í London árið 1904 undir nafninu Peter Pan, the Boy Who Wouldn’t Grow Up.
Nokkrum árum síðar endurskrifaði höfundurinn verkið og gaf það út sem barnabók. Síðan hefur sagan af Pétri Pan komið út í ótal útgáfum, endursögðum og einfölduðum, leikgerðum, söngleikjum, teiknimyndum og bíómyndum. Sá Pétur Pan sem flestir sjá fyrir sér er líklega í þeirri útgáfu sem Disney-fyrirtækið dró upp af honum. Þar er hann þó talsvert ólíkur þeim Pétri Pan sem lesendur kynnast í upphaflegri útgáfu höfundarins, en sá er mikill óknyttadrengur, fór frá foreldrum sínum sem smábarn, hlær að óförum annarra.

Pétur Pan býr í Hvergilandi (e. Neverland) þar sem tíminn líður ekki og því heldur hann eilífri æsku sinni. Pétur Pan fer fyrir hópi stráka sem kalla sig Týndu drengina (e. The Lost Boys) og þeir eiga engan að nema hann. Pétur Pan getur heimsótt mannheima að vild og ferðast þá venjulega í samfloti með litlum álfi sem heitir Skellibjalla (e. Tinkerbell).

Sagan af því þegar Pétur Pan kynnist Vöndu og bræðrum hennar hefst einmitt á einni slíkri ferð til mannheima. Pétur Pan lendir í vandræðum með skuggann sinn sem sífellt reynir að komast undan eigandanum og laumar sér inn um gluggann til Vöndu og bræðranna. Börnin vakna og eftir stutta kynningu verður úr að börnin fara með Pétri Pan til Hvergilands. Vanda tekur strákagengið í sína umsjá, hún segir þeim sögur og sinnir þeim eins og hún væri móðir þeirra. Börnin lenda í ýmsum ævintýrum, hitta indíána og hafmeyjur, og lenda í baráttu við illskeytta sjóræningja sem lúta stjórn Króks kafteins, erkióvinar Péturs Pan. Í lok sögunnar snúa Vanda og bræður hennar aftur heim til Lundúna ásamt Týndu strákunum, enda verða þau að halda áfram lífi sínu þar og fullorðnast. Pétur Pan verður hins vegar eftir í Hvergilandi.

J.M. Barrie höfundi sögunnar um Pétur Pan, J. M. Barrie, og konu hans varð ekki barna auðið. Barrie komst hins vegar í kynni við fimm unga bræður sem hann tók miklu ástfóstri við. Hann sagði þeim gjarnan sögur og í þessum sögum kom Pétur Pan fyrst fram. Hugsanlega hefur Pétur Pan einhverja skírskotun til drengjanna fimm en næstyngsti bróðirinn hét einmitt Peter. Sumir telja að eilíf æska Péturs Pan eigi að endurspegla eilífa æsku eldri bróður Barries en hann lést í slysi aðeins þrettán ára að aldri. Móðir þeirra bræðra komst aldrei yfir sonarmissinn og hefur höfundinum kannski fundist það huggun að ímynda sér bróður sinn á stað þar sem ekkert breytist og enginn eldist, í hálfgerðu himnaríki.

Sagan af Pétri Pan virðist höfða til allra aldurshópa. Börn hafa gaman af ævintýraþætti sögunnar, Pétur Pan kann að fljúga og lendir auk þess í ýmsum háska sem er þó ekki alltof hættulegur. Fullorðnir lesendur bókarinnar kunna að meta meinfyndinn stílinn og áhyggjuleysið sem fylgir því að eldast ekki og þurfa ekki að bera ábyrgð á neinu.
.

Leave a Reply