Á döfinni

posted in: Á döfinni | 0

Enn ein vikan liðin og ef ég hefði ekki þann vana að punkta hjá mér hvað gerist flesta daga væri ég í tómu tjóni og kæmi engu hér inn. Rólegir dagar í borginni en fjör hér heima því barnabörn og aðrir góðir gestir létu sjá sig  auk þess sem ég fór á  kaffihús í Laugardalnum og opnun sýninga í ANARKÍU.

IMG_0240 (2)      IMG_0244       11221355_461104240725908_3243915577474061165_n

IMG_8180 (2)   IMG_8181 (2)  Flott móttaka í ANARKÍU

Friðrik Jónsson var á sama námskeiði og ég í vetur. Hann er frábær maður, kátur skemmtilegur og góður listamaður, aðeins 94 ára gamall! Hann þekkir vel til á Skaganum og hefur haldið nokkrar sýningar þar. Friðrik var á árum  áður skipstjóri á sementsflutningaskipinu Skeiðfaxa sem sigldi á milli Akraness og Reykjavíkur. –

IMG_0268   IMG_0270 Vikan endaði svo með því að ég horfði á athöfn sem fór fram  við Arnarhól á sunnudagskvöld og var til heiðurs Vigdísar Finnbogadóttur fyrrverandi forseta landsins.

Vigdís var glæsileg að vanda og lét ekki íslenskan rigningarúða hafa áhrif á sig. Myndirnar tók ég af sjónvarpsskjánum  og vænst þótti mér um að heyra forsetann  tala til þjóðarinnar enn og aftur um mikilvægi þess að vernda náttúru Íslands og tungumálið. Orð hennar eru leiðarljós sem lýsa öllum þjóðum og vísaði til mikilvægis Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur um leið og hún  sagði hlý og kímin:  “Þar sem allir er til landsins koma munu leita að sjálfum sér!”

 

Leave a Reply