Á döfinni

posted in: Á döfinni | 0

Á laugardag skemmti ég mér konunglega með nokkrum úr fjölskyldunni og sá Billy Elliot í Borgarleikhúsinu. Við fengum okkur létta rétti á undan á Kringlukránni og kom það mér skemmtilega á óvart hvað maturinn er vel fram borinn og góður. Söngleikurinn er frábær og boðskapurinn góður eða eins og Baldvin 13 ára leikari frá Hveragerði segir í viðtali í Barnablaði Moggans sl. sunnudag þegar hann er spurður hvaða ráð hann og félagar hans vilja gefa lesendum blaðsins: “Trúa á sjálfan sig!  Maður getur gert hvað sem maður vill ef maður bara vill það nógu mikið.”

Leave a Reply